Fyrirspurnir | Veftré | English
Leita á SS.is

  • Forsíđa
  • Fréttir
  • Vörur
  • Um SS
  • Til bćnda
  • Fjárfestar
  • Mín síđa
  • RSS
Stćkka leturstćrđVenjuleg leturstćrđ

28. ágúst 2009 | 00:00

Afkoma á fyrri árshelmingi 2009
• Tekjur á fyrri árshelmingi 3.684,4 mkr. og aukast um 13,4% milli ára.
• 45,8 mkr. tap á fyrri árshelmingi ársins, en 471,7 mkr. tap á sama tíma í fyrra.
• EBITDA afkoma var 275 mkr. en 288 mkr. áriđ áđur.
• Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur 188 mkr. ţar af nam gengistap 76 mkr.
 
 
 
Árshlutareikningurinn samanstendur af árshlutareikningi Sláturfélags Suđurlands svf. og dótturfélagi ţess, Reykjagarđi hf. sem Sláturfélagiđ á ađ öllu leyti.
Tap samstćđu Sláturfélags Suđurlands á tímabilinu janúar til júní 2009 var 45,8 mkr. Hátt vaxtastig og gengistap erlendra lána skýrir neikvćđa afkomu. Á sama tímabili áriđ áđur var 471,7 mkr. tap. Eigiđ fé Sláturfélagsins er tćpar 957 mkr. í lok júní.
 
Rekstrartekjur samstćđu Sláturfélags Suđurlands voru 3.684 mkr. á fyrri árshelmingi ársins 2009, en 3.248 mkr. á sama tíma áriđ áđur og hćkka ţví um rúm 13%. Ađrar tekjur voru 23 mkr en 22 mkr. áriđ áđur.
 
Vöru- og umbúđanotkun var 2.176 mkr. en 1.760 mkr. áriđ áđur. Launakostnađur lćkkađi um tćpt 1%, annar rekstrarkostnađur hćkkađi um rúm 8% og afskriftir hćkkuđu um rúm 25%. Rekstrarhagnađur án fjármunatekna og fjármagnsgjalda var 121 mkr., en 165 mkr. áriđ áđur. Hagnađur fyrir fjármagnsgjöld og afskriftir (EBITDA) var 275 mkr. en var 288 mkr. á sama tíma í fyrra.
 
Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur voru 188 mkr., en 632 mkr. á sama tímabili í fyrra. Gengistap nam tćpum 76 mkr. samanboriđ viđ 497 mkr. gengistap áriđ áđur. Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélaga var jákvćđ um tćpa 21 mkr. en neikvćđ áriđ áđur um 7 mkr. Tap af rekstri tímabilsins var 45,8 mkr. en 471,7 mkr. tap var á sama tímabili áriđ áđur.
 
Veltufé frá rekstri var 206 mkr. á fyrri árshelmingi ársins 2009, samanboriđ viđ 214 mkr. fyrir sama tímabil áriđ 2008. Heildareignir Sláturfélagsins 30. júní voru 6.176 mkr. og eiginfjárhlutfall 15%. Veltufjárhlutfall var 1,7 á fyrri hluta ársins 2009, en 1,6 áriđ áđur.
 
Samkvćmt samţykkt ađalfundar félagsins í mars 2009 var hvorki greiddur arđur af B-deild stofnsjóđs né reiknađir vextir á A-deild stofnsjóđs.
 
Sláturfélagiđ birtir upplýsingar um afkomu á sex mánađa fresti í samrćmi viđ heimildir í reglum félaga á Tilbođsmarkađi Kauphallar Íslands. Ráđgert er ađ birta afkomu ársins 2009 ţann 26. febrúar 2010.
Stađa og horfur
Rekstrarumhverfi fyrirtćkja er afar erfitt í dag, mikil verđbólga, hátt vaxtastig og neikvćđ gengisţróun samfara auknum samdrćtti í einkaneyslu í kjölfar verulegrar lćkkunar á ráđstöfunartekjum heimila. Velta félagsins jókst ţó um rúm 13% sem er jákvćtt í erfiđu árferđi. Hátt vaxtastig og veiking krónunnar hafđi neikvćđ áhrif á afkomu SS á fyrri hluta ársins. Ţróun fjármagnsliđa á seinni hluta ársins mun ráđa miklu um afkomu félagsins á árinu.
 
Kjötsala á landsvísu hefur dregist saman á undanförnum mánuđum jafnframt ţví sem útflutningsskylda á dilkakjöti er fallin niđur. Veik stađa krónunnar hefur bćtt skilyrđi fyrir útflutningi á lambakjöti enda mikilvćgt ađ flytja út umtalsvert magn ţar sem innlend framleiđsla er mun meiri en innanlandsneysla.
 
Kjötiđnađur félagsins stendur vel međ fjölbreytt vöruval og öfluga vöruţróun. Erfitt efnahagsumhverfi hefur kallađ á nýjar vörur sem falla betur ađ breyttu neyslumunstri. Kjötiđnađur félagsins er vel í stakk búinn til ađ takast á viđ ţćr ađstćđur sem framundan eru.
 
Matvöruhluti innflutningsdeildar er öflugur enda vörumerki deildarinnar vel ţekkt. Sala á tilbúnum áburđi til bćnda í samstarfi viđ Yara í Noregi gengur vel enda vörugćđin mikil. Innflutningur á kjarnfóđri er ađ aukast umtalsvert milli ára en SS er í samstarfi viđ DLG í Danmörku.
Nánari upplýsingar veitir Steinţór Skúlason, forstjóri í síma 575 6000
 
Reykjavík, 28. ágúst 2009
 
Sláturfélag Suđurlands svf.


Sláturfélag Suđurlands svf, Fosshálsi 1, 110 Reykjavík, Sími 575-6000 Fax 575-6090