Fyrirspurnir | Veftré | English
Leita á SS.is

  • Forsíđa
  • Fréttir
  • Vörur
  • Um SS
  • Til bćnda
  • Fjárfestar
  • Mín síđa
  • RSS
Stćkka leturstćrđVenjuleg leturstćrđ

28. ágúst 2003 | 00:00

Afkoma á fyrri árshelmingi 2003
Fréttatilkynningin í heild ásamt 5 ára yfirliti í pdf skjali (95 kb)

Afkoma á fyrri árshelmingi 2003
Rekstrartap Sláturfélags Suđurlands á tímabilinu janúar til júní 2003 var 59,9 milljónir, en á sama tímabili áriđ áđur var 5,5 milljón króna rekstrartap. Verri afkoma stafar fyrst og fremst af minni veltu vegna offrambođs á kjötmarkađi og 38 milljón króna hćkkun fjármagnsgjalda frá fyrra ári. Fjárhagsstađa Sláturfélagsins er traust međ eigiđ fé rúmar 1.154 milljónir og 44% eiginfjárhlutfall.

Rekstrartekjur Sláturfélags Suđurlands voru 1.567 milljónir á fyrstu sex mánuđum ársins 2003, en 1.747 milljónir á sama tíma áriđ áđur og minnkuđu um rúm 10%.

Rekstrargjöld án afskrifta námu 1.510 milljónum á fyrri hluta ársins 2003 samanboriđ viđ 1.682 milljónum áriđ áđur og minnka um rúm 10%. Afskriftir rekstrarfjármuna voru 76 milljónir sem er óbreytt frá fyrra ári. Rekstrartap án fjármunatekna og fjármagnsgjalda var 19 milljónir, en 11 milljónir króna áriđ áđur.

Fjármagngjöld umfram fjármunatekjur voru 12 milljónir, en á árinu á undan voru fjármunatekjur umfram fjármagnsgjöld 26 milljónir. Undir fjármagnsliđum er 15 milljón króna gjaldfćrsla vegna niđurfćrslu hlutabréfa í eigu félagsins en áriđ áđur var hún 9 milljónir.

Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélaga var neikvćđ um 27 milljónir en áriđ áđur 14 milljónir. Skattar voru 2 milljónir. Tap af rekstri tímabilsins var 59,9 milljónir en 5,5 milljónir áriđ áđur.

Veltufé frá rekstri var 42 milljónir á fyrstu sex mánuđum ársins 2003, samanboriđ viđ 39 milljónir frá rekstri fyrir sama tímabil áriđ 2002.

Í lok júní 2003 voru heildareignir Sláturfélags Suđurlands 2.619 milljónir og höfđu lćkkađ um 313 milljónir frá áramótum. Skammtímaskuldir voru 552 milljónir, langtímaskuldir 913 milljónir og eigiđ fé 1.154 milljónir. Eiginfjárhlutfall var 44% í lok júní 2003 óbreytt frá sama tíma áriđ áđur. Veltufjárhlutfall var 1,6 í lok júní 2003, en 1,4 áriđ áđur.

Fjárfest var í varanlegum rekstrarfjármunum fyrir 42 milljónir á fyrstu sex mánuđum ársins, ađallega í tćkjabúnađi kjötiđnađar og fyrir 9 milljónir í félögum.

Á árinu 2002 var undirritađ samkomulag milli Búnađarbanka Íslands hf. og Sláturfélags Suđurlands svf. um kaup Sláturfélagsins á 67% hlut í kjúklingaframleiđslufyrirtćkinu Reykjagarđi hf. Ţar sem uppgjöri vegna áreiđanleikakönnunar sem gerđ var vegna kaupanna er ekki lokiđ, ţá er kaupverđ hlutabréfanna ekki fćrt í árshlutauppgjöri Sláturfélagsins pr. 30. júní 2003.

Árshlutauppgjöriđ er međ könnunaráritun endurskođenda sem og áriđ áđur. Viđ gerđ ţess er í öllum meginatriđum fylgt sömu reikningsskilaađferđum og á fyrra ári. Reikningsskilin eru verđleiđrétt. Ef reikningsskilin hefđu ekki veriđ verđleiđrétt hefđi tap tímabilsins orđiđ 5 milljónum hćrra og eigiđ fé 52 milljónum lćgra.


Horfur fyrir áriđ 2003
Afkoma félagsins á fyrri árshelmingi ársins 2003 var óviđunandi og einkenndist af mikilli verđsamkeppni og offrambođi á kjöti á markađnum sem hafđi neikvćđ áhrif á afkomu félagsins. Ekki er gert er ráđ fyrir ađ aukiđ jafnvćgi náist á kjötmarkađnum fyrr en kemur fram á áriđ 2004.

Afkoma Sláturfélagsins hefur jafnan veriđ ţyngst framan af árinu en best á síđasta ársfjórđungi. Ţetta stafar m.a. af afkomu afurđadeildar en umsvif hennar aukast viđ haustslátrun sauđfjár. Tekin hefur veriđ ákvörđun um ađ úrelda sláturhúsiđ ađ Laxá til ađ bćta afkomu sauđfjárslátrunar.

Ađhaldi verđur áfram beitt í rekstri félagsins, en gripiđ hefur veriđ til ţess ađ draga úr útgjöldum auk ţess sem fjárfestingar hafa veriđ dregnar saman. Gert er ráđ fyrir ađ afkoma félagsins verđi áfram ţung nćstu mánuđi en afkoman batni á síđasta ársfjórđungi.


Nánari upplýsingar veitir Steinţór Skúlason, forstjóri í síma 575 6000


Reykjavík, 28. ágúst 2003
Sláturfélag Suđurlands svf.


Sláturfélag Suđurlands svf, Fosshálsi 1, 110 Reykjavík, Sími 575-6000 Fax 575-6090