Fóður og bætiefni fyrir hesta | |
---|---|
Kjarnfóður | |
Equsana Iceland Kjarnfóður hannað fyrir íslenska hestinn. Inniheldur omega 3 fitusýrur ásamt öllum nauðsynlegum vítamínum og steinefnum. Fjölbreytt og lystugt hráefni. Eykur heilbrigði hófa og styrkir ónæmiskerfi. Inniheldur brennistein sem er nauðsynlegur fyrir heilbrigða húð, feld, liði og brjósk. Nánari upplýsingar |
|
Equsana Iceland Stud Blanda laus við maís hönnuð fyrir unghross, fylfullar og mjólkandi merar. Í þessari blöndu er að finna hátt hlutfall auðmeltra próteina, sem tryggir að hrossin byggja upp heilbrigða vöðva og sterka beinagrind. Steinefnahlutfallið er sérstaklega hugsað fyrir íslenska hesta, en hátt hlutfall er af lífrænu sinki og kopar. Þetta, ásamt hörfræjum sem útvega omega-3 fitusýrur, hjálpar til við að viðhalda heilbrigði felds og húðar. Blandan inniheldur Macroguard, sem er beta-glúkan sem fæst úr geri, en það virkjar ónæmiskerfið og hjálpar þannig til við að halda hrossinu heilbrigðu. • Styrkir ónæmiskerfið • Viðheldur heilbrigðum vexti • Lítið magn daglega, sér fyrir öllum þörfum Nánari upplýsingar |
|
Body Boost Body Boost er orku- og próteingjafi sem fór í sölu 2015 og hefur síðan þá verið vinsælt kjarnfóður fyrir unghross, reiðhesta og eldri hross. Body Boost hjálpar til við að auka þyngd, bæta vöðvamyndun og viðhalda glansandi feldi. Hentar einstaklega vel fyrir hross sem eru í undirbúningi fyrir mót/sýningar sem og hrossum sem eru að jafna sig eftir meiðsli eða langa pásu frá þjálfun, þar sem blandan hjálpar þeim að viðhalda vöðvamassa. Hörfræ gefa hátt innihald fitu og omega-3 fitusýra. Hátt innihald amínósýra úr soya- og kartöflupróteini hjálpar hrossinu að ná bata eftir þjálfun. Einnig er mikið magn E-vítamíns, sem er öflugt andoxunarefni. Nánari upplýsingar |
|
Power flakes Orkurík kjarnfóðurblanda sem inniheldur hitameðhöndlaðar maís- og byggflögur. Fóðrið inniheldur auðmelta sterkju, sem gefur keppnis- og kynbótahrossum þá auka orku sem þau þurfa. Fitan í fóðrinu eykur úthald og dregur úr myndun mjólkursýru. Auðmelt hágæðaprótein er ákjósanlegt fyrir þroska og viðhald vöðva. Hentar vel fyrir hross í mikilli þjálfun, til dæmis fyrir keppni eða kynbótasýningar. Fóður sem hægt er að nota eitt og sér, með heyi eða með öðru kjarnfóðri. Nánari upplýsingar |
|
Bætiefni | |
Equsana Pleasure vit er alhliða steinefna- og vítamínblanda sem uppfyllir þarfir hestsins. Hún er bragðbætt sem auðveldar það að gefa hana yfir fóður eða eina og sér. Equsana Pleasure Vit er frábær kostur til að uppfylla steinefna- og vítamínþarfir hesta, hvort sem það eru keppnishross, reiðhestar eða hross í ræktun. Nánari upplýsingar |
|
Salto Universal Saltsteinn fyrir nautgripi og hesta. Inniheldur selen, stein- og snefilefni. Náttúrulegt bergsalt, má notast við lífræna ræktun. Nánari upplýsingar |
|
Sótthreinsiefni | |
Stalosan F Náttúrulegt sótthreinsiduft sem samanstendur af steinefnum með súrt pH-gildi. Hagstætt duft fyrir húð dýra. Dregur úr raka, bindur ammóníak, lækkar sýrustig í útihúsum. Fækkar sýkingartilfellum. Gerir umhverfið óhagstæðara fyrir skaðlegar örverur. Vinnur gegn bakteríum, sveppum, vírusum og snýkjudýrum. Notkunarleiðbeiningar Stalosan F hefur sýnt fyrirbyggjandi áhrif gegn múkki. |
|
Fóðurstampar | |
Basis Feeder Verja steinefni fyrir rigningu, þvagi og skít. Henta dýrum með horn, bæði kúm og kindum. Skiptist í þrjú 17 L hólf. Rúmar Vitfoss fötur en einnig hentugar fyrir duft. |
|
Mineral Rocker Verja steinefni fyrir rigningu, þvagi og skít. Gerðir úr sterku plasti sem krefst ekki viðhalds. Henta fyrir allan búfénað. Auðvelt að flytja á milli hólfa. |