Dagatal 2018

Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands verður haldinn föstudaginn 23. mars 2018 á Goðalandi, Fljótshlíð og hefst kl. 15:00.

Birtingaráætlun:
• Jan – júní 2018 uppgjör, þann 23. ágúst 2018
• Júl – des 2018 uppgjör, þann 21. febrúar 2019

Jafnframt er fyrirhugað að halda aðalfund vegna ársins 2018, föstudaginn 22. mars 2019.

Dagskrá aðalfundar 23. mars 2018

Auglýsing aðalfundar SS

Dagskrá og tillögur fyrir aðalfund á pdf. formi

Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands svf. verður haldinn föstudaginn 23. mars 2018 á Goðalandi  Fljótshlíð og hefst kl. 15:00.

Dagskrá:

1. Setning aðalfundar, kosning starfsmanna fundarins og könnun á mætingu fulltrúa.
2. Skýrsla stjórnar félagsins.
3. Starfsemi félagsins á liðnu ári.
4. Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár skýrður.
5. Skýrsla skoðunarmanna.
6. Tillaga stjórnar  um vexti af stofnsjóði og greiðslu arðs.
7. Umræður um skýrslu stjórnar, skýrslu um starfsemi félagsins, ársreikning og tillögu um vexti og arð af stofnsjóði.
8. Afgreiðsla ársreiknings og tillagna um vexti og arð af stofnsjóði.
9. Kosin stjórn félagsins.
10. Kosning endurskoðenda og skoðunarmanna.
11. Ákvörðun um þóknun stjórnar, skoðunarmanna og greiðslur til fulltrúa.
12. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, löglega upp borin.

Tillögur frá félagsaðilum sem bera á fram á aðalfundi þurfa að vera komnar skriflega í hendur stjórnarinnar eigi síðar en 14 dögum fyrir aðalfund. Framboð til stjórnar og varastjórnar skal hafa borist skriflega í hendur stjórnarinnar eigi síðar en þremur vikum fyrir aðalfund í samræmi við 2. mgr.  27. gr. samþykkta félagsins.

Tillögur:

Liður 6 í dagskrá: Tillaga stjórnar um vexti af stofnsjóði og greiðslu arðs.

Stjórn Sláturfélags Suðurlands svf. leggur til við aðalfund að greiddur verði 11,73%  arður af B-deild stofnsjóðs þar af er verðbótaþáttur 1,73% skv. 1. mgr. 14. gr. samþykkta félagsins, alls kr. 21.122.719,- eða 0,12 kr. á hvern útgefin hlut. Jafnframt að reiknaðir verði 4% vextir á höfuðstól inneigna í A-deild stofnsjóðs, alls kr. 13.992.579,-  Arðleysisdagur er 26. mars og arðréttindadagur er 27. mars.  Greiðsludagur arðs er 26. apríl n.k.

 

Reykjavík, 22. febrúar 2018.

Stjórn Sláturfélags Suðurlands svf.

 

Afkoma ársins 2017

Fréttatilkynningin á pdf. formi með 5 ára yfirliti

Ársreikningur 2017 á pdf. formi

• Rekstrartekjur ársins 11.741 m.kr. en 11.859 m.kr. árið 2016
• 160 m.kr. hagnaður á árinu á móti 562 m.kr. árið áður
• EBITDA afkoma var 704 m.kr. en 1.195 m.kr. árið 2016
• Eigið fé 5.181 m.kr. og eiginfjárhlutfall 60%

Samstæðuársreikningurinn samanstendur af ársreikningi Sláturfélags Suðurlands svf. og dótturfélaga þess, Reykjagarðs hf. og Hollt og gott ehf

Hagnaður samstæðu Sláturfélags Suðurlands á árinu 2017 var 160 m.kr. skv. rekstarreikningi.  Árið áður var 562 m.kr. hagnaður.  Eigið fé er 5.181 m.kr. og eiginfjárhlutfall samstæðunnar er 60%.

Rekstrartekjur samstæðu Sláturfélags Suðurlands voru 11.741 m.kr. árið 2017, en 11.859 m.kr. árið áður og lækka því um 1%.  Aðrar tekjur voru 13 m.kr. en 14 m.kr. árið áður.

Vöru- og umbúðanotkun var 5.825 m.kr. en 5.877 m.kr. árið áður.  Launakostnaður var 3.240 m.kr. og hækkaði um tæp 11%, annar rekstrarkostnaður var 1.984 m.kr. og hækkaði um rúm 6%.  Afskriftir hækkuðu um rúm 7%.  Rekstrarhagnaður án fjármunatekna og fjármagnsgjalda var 304 m.kr., en 823 m.kr. árið áður.  Hagnaður fyrir fjármagnsgjöld og afskriftir (EBITDA) var 704 m.kr.  en var 1.195 m.kr. árið áður.

Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur voru 109 m.kr., en voru 123 m.kr. árið áður.  Gengistap var 17 m.kr. samanborið við 6 m.kr. gengistap árið áður.

Reiknaður gjaldfærður tekjuskattur er 36 m.kr. en 138 m.kr. árið áður.  Hagnaður af rekstri ársins var 160 m.kr. en 562 m.kr. árið áður. Minni hagnaður milli ára skýrist fyrst og fremst af versnandi afkomu afurðaþáttar félagsins, m.a.  vegna aukins innflutnings á kjöti, neikvæðra samkeppnisáhrifa á innflutningshluta félagsins og lakari afkomu dótturfélaga.

Veltufé frá rekstri án vaxta og skatta var 691 m.kr. árið 2017 samanborið við 1.188 m.kr. árið 2016.  Heildareignir Sláturfélagsins 31. desember 2017 voru 8.657 m.kr. og eiginfjárhlutfall 60%.   Veltufjárhlutfall var 2,2 árið 2017, en 2,7 árið áður.

Fjárfest var á árinu fyrir 856 m.kr. í varanlegum rekstrarfjármunum en 433 m.kr. árið áður.  Seldar voru eignir fyrir 18 m.kr.  Á árinu var fjárfest í fasteignum fyrir 371 m.kr., vélum og tækjabúnaði fyrir 423 m.kr. og bifreiðum 62 m.kr.

Samkvæmt samþykkt aðalfundar félagsins í mars 2017 var í aprílmánuði greiddur 12,1% arður af B-deild stofnsjóðs alls 22 m.kr. og reiknaðir 5% vextir á A-deild stofnsjóðs alls 17 m.kr.

Stjórnin staðfesti endurskoðaðan ársreikning félagsins á stjórnarfundi í dag.

Sláturfélagið er skráð á First North markaðinn hjá NASDAQ OMX.  Sláturfélagið birtir upplýsingar um afkomu á sex mánaða fresti.  Ráðgert er að birta afkomu fyrri árshelmings ársins 2018 þann 23. ágúst 2018.

Aðalfundur
Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands verður haldinn föstudaginn 23. mars n.k.  Stjórn félagsins mun þar leggja til að greiddur verði 11,73% arður af B-deild stofnsjóðs, þar af verðbótarþáttur 1,73%, alls 21,1 m.kr. eða 0,12 kr. á hvern útgefin hlut og reiknaðir 4% vextir á höfuðstól inneigna í A-deild stofnsjóðs, alls 14,0 m.kr.

Staða og horfur
Fjárhagsstaða Sláturfélagsins er traust með 60% eiginfjárhlutfall og veltufjárhlutfall 2,2. Langtímatímaskuldir í lok árs voru 1.624 m.kr. Næsta árs afborganir eru um 85 m.kr. en lán samstæðunnar eru til langs tíma.

Afkoma Sláturfélagsins versnaði milli ára en afurðahluti félagsins býr við afar erfið skilyrði. Lágt verð á erlendum mörkuðum fyrir kindakjöt, vaxandi innflutningur á kjöti og sterk króna hafði neikvæð áhrif á afkomu á árinu 2017. Einnig er gert ráð fyrir að nýr EB tollasamningur muni hafa verulega neikvæð áhrif á innlendan kjötmarkað á næstu árum og því m.a. brýnt að aðlaga kindakjötsframleiðsluna betur að innanlandsmarkaði.

Staða lykilvörumerkja félagsins í kjötiðnaði er sterk og ímynd félagsins góð á markaði. Samt sem áður er reiknað með að erfiðar markaðsaðstæður á kjötmarkaði hafi áfram neikvæð áhrif  á afkomu kjötiðnaðar á árinu.

Breytingar á smásölumarkaði á vormánuðum höfðu neikvæð áhrif á matvöruhluta innflutningsdeildar og er gert ráð fyrir að svo verði áfram.

Búvöruhluti innflutningsdeildar hefur byggst hratt upp og er vaxandi þáttur í starfssemi félagsins.

 

Fjárhagsdagatal
Aðalfundur 2018   23. mars 2018
Janúar – júní 2018 uppgjör 23. ágúst 2018
Júlí – desember 2018 uppgjör 21. febrúar 2019
Aðalfundur 2019   22. mars 2019

Frekari upplýsingar veitir:

Steinþór Skúlason, forstjóri í síma 575 6000 – steinthor@ss.is
Hjalti H. Hjaltason, fjármálastjóri í síma 575 6000 – hjalti@ss.is

 

Breyting á yfirstjórn Sláturfélags Suðurlands og dótturfélagsins Reykjagarðs hf.

Guðmundur Svavarsson tekur við starfi framkvæmdastjóra Reykjagarðs hf.  frá 1. mars n.k. af Hjalta H. Hjaltasyni fjármálastjóra SS sem tók tímabundið við starfi framkvæmdastjóra Reykjagarðs hf. í maí s.l. samhliða starfi sínu sem fjármálastjóri SS.

Guðmundur Svavarsson hóf störf hjá SS árið 1996 sem deildarstjóri innkaupa- og áætlunardeilda í framleiðsludeild. Frá árinu 2001 hefur Guðmundur gengt starfi framleiðslustjóra SS.

Benedikt Benediktsson kjötiðnaðarmeistari og verksmiðjustjóri SS hefur verið ráðinn í starf framleiðslustjóra SS.

 

Reykjavík, 22. febrúar 2018.

Sláturfélag Suðurlands svf. 

Steinþór Skúlason, forstjóri – sími: 575 6000 – steinthor@ss.is

Fréttatilkynningin á pdf. formi