SS greiðir uppbót á afurðaverð

SS greiðir þann 22. febrúar n.k. 2,8% uppbót á afurðaverð vegna innleggs á árinu 2012, alls 47 mkr. en að viðbættum virðisaukaskatti 59 mkr. Uppbót á afurðaverð er í samræmi við arðgreiðslustefnu félagsins.

Stjórn SS samþykkti á stjórnarfundi hinn 19. febrúar 2013 að hafa sem viðmiðun að greiða samtals einn þriðja af afkomu móðurfélagsins af reglulegri starfsemi eftir skatta og fyrir reiknaða hlutdeild í afkomu dótturfélags og hlutdeildarfélaga til eigenda og félagsmanna.

Ef jafna þarf tap eða leggja framlög í lögbundna sjóði kemur það til frádráttar. Þessi þriðjungur skiptist í arð þ.m.t. arð vegna verðbóta til B deildar, vexti til A deildar og uppbót á afurðaverð liðins árs. Arður til B deildar og vextir á A deild greiðast skv. samþykktum félagsins en það sem á vantar að þriðjungi af afkomu sé náð verður greitt sem uppbót á afurðaverð. Með þessum hætti er ætlunin að tengja enn betur en verið hefur ávinning bænda sem skipta við félagið við afkomu er vel gengur.

Dagatal 2013

Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands verður haldinn föstudaginn 22. mars 2013 á Goðalandi, Fljótshlíð og hefst kl. 15:00.
 
Birtingaráætlun:
• Janúar – júní  2013 uppgjör, þann 23. ágúst 2013.
• Júlí  – desember 2013 uppgjör, þann 18. febrúar 2014.
 
Jafnframt er fyrirhugað að halda aðalfund vegna ársins 2013, föstudaginn 21. mars 2014.