Niðurstaða félagsfundar B-deildar 26. mars 2012

Niðurstaða félagsfundar sem haldinn var með eigendum hluta í B-deild stofnsjóðs
Sláturfélags Suðurlands svf., 26. mars 2012.
 
 
Tillaga stjórnar Sláturfélags Suðurlands vegna kaupa á hlutum í B-deild stofnsjóðs var felld.
 
Átta aðilar sem eiga samtals 55,02% eignarhlut í B-deild stofnsjóðs greiddu atkvæði gegn samþykkt tillögunnar og telst hún því felld.

Niðurstöður aðalfundar 23. mars 2012

Eftirfarandi tillögur voru samþykktar á aðalfundi Sláturfélags Suðurlands svf., 23. mars 2012.

1.  Vextir af stofnsjóði og greiðsla arðs.
Samþykkt tillaga stjórnar SS að greiddur verði 15,224%  arður af B-deild stofnsjóðs þar af er verðbótaþáttur 5,224% skv. 1. mgr. 14. gr. samþykkta félagsins, alls kr. 30.448.000,- eða 0,15 kr. á hvern útgefin hlut. Jafnframt að reiknaðir verði 15,224% vextir á höfuðstól inneigna í A-deild stofnsjóðs, alls kr. 38.313.239,-  Arðleysisdagur er 26. mars og arðréttindadagur er 28. mars.  Greiðsludagur arðs er 30. apríl n.k.
 
2.  Tillaga stjórnar vegna kaupa á hlutum í B-deild stofnsjóðs.
Samþykkt tillaga stjórnar SS að stefna að lækkun hluta í B-deild stofnsjóðs félagsins með skipulegum kaupum á hlutum í B-deild stofnsjóðs og niðurfærslu þeirra hluta í kjölfarið, sem hugsanlega taki til allra hluta í B-deild stofnsjóðs. Stjórn félagsins er veitt umboð til kaupa á hlutum í B-deild stofnsjóðs á gengi 1,05 miðað við nafnverð þeirra, og fara umfram þau 10% vikmörk sem samþykktir og lög heimila, enda tilgangur kaupanna að færa hlutina strax niður á eftir. Tryggt skal að allir eigendur hluta í B-deild stofnsjóðs sitji við sama borð í þessum efnum, þannig að öllum þeim bjóðist að selja félaginu B-deildar stofnsjóðshluti sína á sama verði og í sama mæli. Ekki skal varið hærri fjárhæð til kaupanna en eðlilegt má teljast af þessu tilefni með hliðsjón af efnahag félagsins.

Samþykkt þessi er bundin því að aukinn meirihluti félagsmanna á aðalfundi samþykki tillöguna og að meirihluti eigenda B-deildar stofnsjóðshluta leggist ekki gegn áformunum á sérstökum félagsfundi þeirra sem haldinn skal strax að loknum aðalfundinum ef tillagan verður samþykkt þar.

Lagt er fyrir stjórn að boða án tafar til aukafélagsfundar Sláturfélags Suðurlands svf. ef áform þessi ganga eftir, þar sem á dagskrá verði formleg tillaga um lækkun hluta í B-deild stofnsjóðs og tilheyrandi tillaga um breytingu á samþykktum félagsins. Tillögunni skulu fylgja upplýsingar um uppkaup félagsins á eigin hlutum í B-deild stofnsjóðs, í hvaða mæli þau eru og við hvaða verði.
 
Aðrar niðurstöður :
 
3.  Kosning stjórnar.
Stjórn félagsins eftir kosningar skipa eftirtaldir:

Aðalmenn:
Hallfreður Vilhjálmsson, formaður, kt. 031259-4449
Sigurlaug Jónsdóttir, varaformaður, kt. 170657-2099
Aðalsteinn Guðmundsson, ritari, kt. 010552-2069
Kristinn Jónsson, kt. 020460-3939
Guðmundur H. Davíðsson, kt. 020659-2119

Til vara:
Brynjólfur Ottesen, kt. 240860-2609
Ólafur Þorsteinn Gunnarsson, kt. 021065-2939
Björn Harðarson, kt. 011059-3769
Guðmundur Ómar Helgason, kt. 290672-3689
Guðmundur Jónsson, kt. 280852-2879
 
4.  Kosning skoðunarmanna og endurskoðenda.

Löggiltur endurskoðandi:
Deloitte hf., Smáratorgi 3, 201 Kópavogur
 
Skoðunarmenn:

Aðalmenn:
Ásbjörn Sigurgeirsson, kt. 200752-2529
Kjartan Magnússon, kt. 250657-2939
 
Varaskoðunarmenn:
Esther Guðjónsdóttir, kt. 010366-5509
Bjarni Jónsson, kt. 300952-3649
 
5. Laun stjórnar og skoðunarmanna.
 
Stjórnarformaður kr. 1.065.000,-  á ári.
Meðstjórnendur kr.  532.500,-  á ári.
Skoðunarmenn kr. 140.000,- á ári.
Endurskoðunarnefnd(stjórnarmaður) kr. 140.000,-  á ári.